Sótt er um leyfi til að skipta eignarhluta í tvær sjálfstæðar einingar sem verða 0105/0109 og 0106/0110, rífa niður hluta af millipalli merkt 0110 og hætt verður við að breyta gluggum á götuhlið húss á lóð nr. 119 við Hringbraut. Tölvupóstur frá hönnuði dags. 21. jan. 2011 fylgir erindinu. Minnkun: 12,2 ferm. Gjald kr. 7.700 + 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.