Spurt er hvort byggja megi úr timbri aðstöðuhús fyrir starfsfólk með kaffistofu, salerni o.fl. við Hundahótelið Leirum á Álfsnesi landnr. 125834. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 21. janúar 2011 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 7. febrúar 2011..
Svar
Jákvætt. Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra, en þar er bent á leiðir er til greina kunna að koma til úrlausnar málsins. Fyrirspyrjandi getur á eigin kostnað látið vinna tillögu að breyttu deiliskipulagi sem væntanlega yrði besta lausnin.