Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi B022776 sem var samþykkt fyrst 16. okt. 2001 og síðast endurnýjað 17. nóv. 2009 sem erindi BN040630, þar sem sótt var um leyfi til þess að innrétta veitingastað í flokki II á 1. hæð í austurenda Fálkahússins og fjölga gluggum á viðbyggingu á norðurhlið hússins á lóð nr. 1-3 við Hafnarstræti. Gjald kr. 7.700
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.