Sótt er um leyfi til að koma fyrir 2 metra hárri öryggisgirðingu úr netmöskvum og stálstólpum, með tveim aksturshliðum og einu gönguhliði umhverfis lóðina nr. 15 við Klettagarða. Samþykki aðliggjandi lóðarhafa nr.19 og 21 sem eru dags. þann 13. jan. 2011 fylgja erindinu. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.