Sótt er um samþykkt á reyndarteikningu sem sýnir núverandi fyrirkomulag, veitingahús á 1. hæð, menningarmiðstöð á 2. hæð og tvær íbúðir á 3. hæð í húsi á lóð nr. 8 við Tryggvagötu. Erindi fylgir greinargerð hönnuðar dags. 18. janúar 2011 og yfirlýsing um breytingar dags. 26. janúar 2011. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.