Sótt er um leyfi til að byggja nýtt atvinnuhúsnæði sem á að hýsa bón- og þvottastöð og aðra atvinnustarfsemi á einni hæð, úr staðsteyptri, járnbentri steinsteypu með flötu þaki á lóð nr.10 við Gjótháls. Áður samþykkt erindi BN039491 dags. 7. apríl 2009 verður fellt úr gildi. Stærð: 993,7 ferm. og 4.883,6 rúmm. Gjald kr. 8.000 + 8.000 + 390.688
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.