Sótt er um leyfi til að byggja tengibyggingu á einni hæð, sem tengist tengigangi frá fjölbýlishúsum á lóð nr. 58-64 á lóðamörkum, við hjúkrunarheimili á lóð nr. 66 við Suðurlandsbraut. Erindi fylgir brunahönnun frá Mannvit dags. í febrúar 2011. Stærð: Tengigangur 98 ferm., 421,4 rúmm. Útirými (B-rými) 16 ferm. Gjald kr. 8.000 + 33.712
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.