Sótt er um leyfi til að breyta 1. hæð., 2. hæð og kjallara, og opna tímabundið á milli rýma 0003 og 0002 sem eru í séreign og koma fyrir vararafstöð á afgirtu svæði við húsnæði á lóð nr. 8 við Skeifuna. Samþykki frá eiganda aðliggjandi lóðar ódags. Samþykki eiganda á fylgiriti ódags. fylgir. Gjald kr. 8.000 + 8.000 + 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.