Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að reisa frárennslishreinsunartanka úr stáli og tækjaskýli á steyptum undirstöðum, jafnframt er erindi BN041683 dregið til baka, við gosdrykkjaverksmiðju á lóð nr. 1 við Stuðlaháls.
Meðfylgjandi er yfirlýsing vegna frárennslistanka dags. 1. mars 2011, vottorð frá einingaverksmiðjunni Breiðhöfða dags. 1. mars 2011 og EC vottorð vegna veggeininga frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands dags. 15. febrúar 2011. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 25. febrúar 2011 fylgir erindinu.
Stækkun 328,1 ferm., 2.143,8 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 171.504