Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum í rýmum 0102 og 0103 sem eru veitingastaðir á jarðhæð og opna tímabundið yfir eignamörk í húsi á lóð nr. 1 við Höfðabakka. Meðfylgjandi er þinglýst samkomulag dags. 1. apríl 2011 Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.