Spurt er hvort leyft yrði að grafa frá kjallara og samþykkt fengist fyrir íbúð í kjallara einbýlishússins á lóð nr. 46 við Tjarnargötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. mars 2011 fylgir erindinu.
Svar
Nei. Ekki verður samþykkt ný íbúð í kjallara. Sýna verður fram á að íbúð sé áður gerð og í sér eignarhaldi ásamt íbúðarskoðun verður málið skoðað nánar.