Sótt er um leyfi til að opna milli rýma á 2. hæð og í risi og sameina lóðirnar nr. 33 og 33A við Njálsgötu. Gjald kr. 8.000 + 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.