Sótt er um samþykki á reyndarteikningu vegna eignarskiptasamnings á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 22 við Nökkvavog. Samþykki meðeigenda dags. 13. mars. 2011 fylgir. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.