Sótt er um leyfi til að breyta staðsetningu svalahurða á 5. hæð fjölbýlishúss nr. 20 mhl. 01, samanber nýsamþykkt erindi BN042362, á lóð nr. 20-26 við Skyggnisbraut. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.