Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum geymsluskúr sbr. erindi BN030752 á lóð nr. 21B við Ingólfsstræti. Lagður er fram úrskurður Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 19. nóvember 2008, einnig umsögn lögfræði- og stjórnsýslu dags. 31. mars 2011. Stærðir 16,9 ferm., 41,4 rúmm. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.