Sótt er um samþykki á reyndarteikningum þar sem hætt var við að hafa glugga í bílskúrshurðum, sameinaðir voru bílskúrar þannig að þeim fækkar úr 22 í 15 bílskúra, sett er hurð á milli rýma 0109 og 0110 og aðrar smá breytingar í bílgeymslum á lóðinni nr. 131 við Hraunbæ. Samþykki á fylgiriti fylgir ódags. Samþykki meðlóðarhafa dags. 20. maí 2011. Gjald kr. 8.000 + 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.