Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum og búa til sér íbúð í þakhæð fjölbýlishússins á lóð nr. 33A við Bragagötu. Jákvæð fyrirspurn BN042802 dags. 5. apríl 2011 fylgir erindi, einnig samþykki meðeiganda dags. 14. apríl. Gjald kr. 8.000 + 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.