Sótt er um leyfi til að breyta innbyggðum bílskúr, geymslu og húsbóndaherbergi í hluta af almennri íbúð 0101 á 1. hæð í húsi á lóð nr. 53 við Hólmgarð. Umsögn burðarvirkishönnuðar fylgir dags. 11. apríl. 2011 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 29. apríl 2011. Gjald kr. 7.700 + 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.