Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningu sem sýnir breytt innra fyrirkomulag og ytra útlit, sem og endurbættar brunavarnir í atvinnuhúsi (mhl.01) á lóð nr. 6 við Súðarvog. Jafnframt er erindi BN041558 dregið til baka. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.