Sótt er um leyfi til að breyta kvistum, útveggjaklæðingu og gluggum til upprunalegs horfs og sameina í einn matshluta veitingahúsin á lóð nr. 8 við Lækjargötu. Erindi fylgir umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 28. apríl 2011 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 3. maí 2011. Stækkun: 9,5 rúmm. Gjald kr. 8.000 + 760
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Með vísan til umsagnar Minjasafns Reykjavíkur skal allur frágangur vera í samræmi við aldur og gerð hússins.