Spurt er hvort stækka megi útbyggingu til suðurs, hækka risið á henni, koma fyrir nýjum kvisti á norðurhlið og breyta innanhússskipulagi í einbýlishúsi á lóð nr. 82 við Langagerði. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 13. maí 2011 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 13. maí 2011.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum og með vísan til umsagnar skipulagsstjóra og athugasemda á fyrirspurnarblaði. Sækja verður um byggingarleyfi sem grenndarkynnt verður.