Sótt er um leyfi til að breyta eignaskiptum þannig að 1. hæð verði séríbúð og kjallari, 2. hæð og ris verði önnur íbúð í húsi (mhl.01) á lóð nr. 25 við Skólavörðustíg. Meðfylgjandi er ódagsett samþykki meðeiganda. Gjald kr. 8.000 + 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.