Sótt er um leyfi til að innrétta gistiheimili með fjórtán gistiíbúðum í íbúðar- og atvinnuhúsi nr. 2A við Grettisgötu. Meðfylgjandi er bréf frá nágranna á Grettisgötu 2 dags. 28. júní 20111 og bréf umsækjanda með ósk um takmarkað framkvæmdaleyfi dags. 28. júní 2011 Gjald kr. 8.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Þinglýsa skal kvöð um flóttaleið á lóð nr. 2 á Grettisgötu áður en afstaða til byggingaráforma og takmarkaðs framkvæmdaleyfis er tekin.