Sótt er um leyfi til að fjarlægja burðarvegg á milli stofu og gangs og til að sameina stofu við eldhús á 1. hæð í rými 0102 í fjölbýlishúsinu nr. 45 við Garðastræti. Umsögn burðarvirkishönnuðar fylgir dags. 19. júlí 2011. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.