Sótt er um leyfi til að sameina matshluta 01 og 03, innrétta keiluhöll á 1. hæð kvikmyndahúss, endurútgefa heildarteikningar, leggja fram nýja skráningartöflu ásamt ýmsum smærri breytingum á Egilshöll á lóð nr. 1 við Fossaleyni. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.