Sótt er um leyfi til að flytja forsteypta veggi frá Torfufelli og grafa þá að hluta niður við suðurhlið fjölbýlishúss á lóð nr. 2 við Iðufell. Samþykki formanns Gyðufells 14 fylgir með. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.