Sótt er um leyfi til að breyta tveim kvikmyndasölum aftur í veitingastað eins og var í tíð Silfurtunglsins, sbr. fyrirspurn BN043002 dags. 17. maí 2011, á 2. hæð í húsi Austurbæjarbíós á lóð nr. 37 við Snorrabraut. Umsögn skipulagsstjóra dags. 18. maí 2011 fylgir. Gjald kr. 8.000 + 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.