Sótt er um leyfi til að byggja millibyggingu milli íbúðarhúss og bílskúrs, byggja kvist yfir baðherbergi á 2. hæð og breyta gluggum í einbýlishúsi á lóð nr. 22 við Urriðakvísl. Meðfylgjandi er bréf skipulagsstjóra dags. 12.9. 2011 Stærðir stækkun: 15,8 ferm., 43,8 rúmm. Gjald kr. 8.000 + 3.504
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Uppfylla skal skilyrði varðandi lagnir og tengingu Orkuveitu Reykjavíkur fyrir útgáfu byggingarleyfis. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.