Sótt er um leyfi til að breyta hluta af bílageymslu (B-rými) í gang (A/rými) og glerja hann, bílastæðum fækkar um eitt og annað breytist í B-stæði sem þó er innan marka bílastæðakrafna fyrir fjölbýlishúsið á lóðinni nr. 58-62 við Suðurlandsbraut. Stækkun: A rými 179,8 ferm., 750,3 rúmm. Minnkun: B rými 179,8 ferm., 750,3 rúmm. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.