Sótt er um leyfi til breytinga á skráningu þannig að rými 0102, 0103, 0202 og 0203, sem áður voru í sameign verði nú séreign íbúðar 0201 í tvíbýlishúsinu á lóð nr. 67 við Háagerði. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.