Sótt er um samþykki á reyndarteikningu sem sýnir nýjan útgang úr stofu á austurhlið annarrar hæðar út á bílskúrsþak, byggingu palls með grindverki og skjólvegg á bílskúrsþakinu til samræmis við sams konar mannvirki á Bárugötu 19, sbr. umsögn skipulagsstjóra dags. 9. nóvember 2011, við íbúðarhús á lóð nr. 21 við Bárugötu. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Enda séu veggir lóðanna 19 og 21 að götu jafnháir, og veggur á lóðarmörkum jafnhár þeim veggjum sem fyrir eru. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.