Sótt er um samþykkt á reyndarteikningu, þar sem gerð er grein fyrir áður gerðri ósamþykktri íbúð í kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 50 við Reynimel. Erindi fylgir sameignarsamningur dags. 27. nóvember 1975 og þinglýst breyting á skiptayfirlýsingu dags. 25. mars 1993, íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 28. september og 3. október 2012. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.