Sótt er um leyfi til að endurbæta áður gerða íbúð og fá hana samþykkta og til að breyta innra skipulagi í kjallara tvíbýlishúss á lóð nr. 23 við Vífilsgötu. Meðfylgjandi er virðingargjörð frá 1936 og íbúðarskoðun dags. 22. febrúar 2012 Gjald kr. 8.000 + 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.