Spurt er hvort leyfi fengist til að innrétta kaffihús í flokki III í húsinu á lóð nr. 3 við Austurstræti. Bréf frá umsækjanda og ljósmyndir fylgja. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 3. febrúar 2012 fylgir erindinu.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi. Sérstök athygli er vakin á athugasemdum á fyrirspurnarblaði.