Sótt er um leyfi til að innrétta íbúð í mhl. 01, koma fyrir fánastöng á vesturgafl og færa til upprunalegs horfs tvíbýlishús á lóð nr. 13 við Garðastræti. Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrætti, umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 9. desember 2011 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 23. apríl 2012. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.