Sótt er um leyfi til að innrétta kaffihús í fl. I í suð-vesturhorni á 1. hæð og í kjallara með opnun út í Víkurgarðinn og með reykröri upp úr þaki á vesturhlið húss á lóð nr. 9 við Aðalstræti. Meðfylgjandi er samþykki flestra eigenda dags. 15. mars 2012. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.