Fyrirspurn
Spurt er hvort innrétta megi gistiheimili, sem rekið verður með aðstöðu starfsfólks, móttöku gesta og þjónustu í tengslum við gistiheimili á Hverfisgötu 45 og Veghúsastíg 7, í þriggja hæða þríbýlishúsi frá 1908 á lóð nr. 9 við Veghúsastíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 2. mars 2012 fylgir með erindinu.