Sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi veitingastaðar í flokki III með hámarksfjölda gesta 125 á 1. hæð í húsi á lóð nr. 1A við Ingólfsstræti. Leyfisbréf frá lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðis gildir til 18. nóv. 2015. Bréf frá hönnuði ódags. fylgir. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.