Íbúð 3. og 4. hæð - verönd 3. hæð
Bankastræti 6 01.17.020.4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Málsaðilar
Hróbjartur Róbertsson
Byggingarfulltrúi nr. 687
12. júní, 2012
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að útbúa verönd á þaki 3. hæðar og samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 6 við Bankastræti.
Erindi fylgja yfirlýsing og samþykki meðeigenda dags. 15. og 29. febrúar 2012 og 16. maí 2012, virðingargjörð dags. 1. júní 1941, þinglýst umboð v/ 3. hæðar dags. 27. nóvember 2009 og jákv. fsp. um þaksvalir dags. 12. maí 2005.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16.04.2012 fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101332 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007580