Sótt er um leyfi til að klæða húsið að utan með álklæðningu og að koma fyrir svalalokun á 1, 2, og 3 hæð á húsið á lóð nr. 10 við Spóahóla. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 13. apríl 2012, ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 10. apríl 2012 fylgja erindinu. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 21. mars. 2012 og samþykki meðeigenda ódags. fylgja. Stækkun: 89,2 rúmm. Gjald kr. 8.500 + 7.582
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.