Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja við til norðurs, dýpka kjallara, hækka útveggi, færa inngang og gera portbyggt ris á einbýlishús á lóð nr. 18A við Grettisgötu.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 28. mars 2012, umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 29. mars 2012 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 23. apríl 2012. Einnig samþykki lóðarhafa.
Stækkun: Kjallari 9,9 ferm., 1. hæð 9,9 ferm., ris 35,4 ferm.
Samtals: 55,6 ferm., 190,7 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 8.500 + 16.210