Sótt er um leyfi til að breyta notkun rýmis úr skrifstofum í bókakaffi með útiveitingar í flokki I fyrir 25 gesti á 1. hæð í húsinu á lóð nr. 2A við Vesturgötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 11. maí 2012 fylgir erindinu. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.