Fyrirspurn
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum fyrir íbúðarhús og einnig er sótt um stækkun íbúðarhúss þar sem byggt er við 1. hæð og bætt er við 2. hæð og bílageymslan stækkuð á lóð nr. 47 við Laugarnesveg.
Úrskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. maí 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 22. maí 2012.
Stækkun: íbúðarhús: 1.hæð 9,6 ferm., 25,4 rúmm. 2. hæð 83,9 ferm., 284,3 rúmm. Samtals. 93.5 ferm., 311.6rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 8.500 + 27.260