Sótt er um leyfi til að endurnýja erindi BN038480 þar sem loka á bílskýli í húsinu Breiðavík 6. Tvö ný bílastæði eru gerð við norðurhlið hússins. Þinglýst samþykki meðeigenda dags. 24. janúar 2012 fylgir erindi Stækkun 31,4 ferm og 147,4 rúmm Gjald kr. 8.500 + 12.529
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.