Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi BN043923 sem felst í að breyta lítillega stærðarhlutföllum milli íbúða á 2. og 3. hæð vegna burðarvirkis og skipta verslunarrými í norð-austurenda á 1. hæð í fjögur rými ásamt breytingum í kjallara sem af því hlýst í fjölbýlishúsi á lóð nr. 18-20 við Dunhaga. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.