Sótt er um leyfi til að opna milli matshluta 01 og 02 á 1. hæð og innrétta skrifstofu í mhl. 02 í hóteli á lóð nr. 2 við Pósthússtræti. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.