Spurt er hvort leyft yrði að koma fyrir svölum á austurhlið annarrar, þriðju og fjórðu hæðar hússins nr. 49 við Hverfisgötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 6. júlí 2012 fylgir erindinu.
Svar
Jákvætt. Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 06. júlí 2012, og athugasemda á fyrirspurnarblaði. Sækja þarf um byggingarleyfi.