Sótt er um samþykki á reyndarteikningum þar sem kemur fram afmörkun séreigna í kjallara og í ris í húsinu á lóð nr. 90 við Njálsgötu. Samþykki meðeigenda á teikningum A4 ódags. ,tölvupóstur frá hönnuði dags. 19. júní 2012 og þinglýst skiptayfirlýsing og virðingargjörð fylgir. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.