Sótt er um samþykki fyrir núverandi innra fyrirkomulagi á annarri hæð hússins á lóðinni nr. 2 við Viðarhöfða. Felldur er niður veggur milli eignahluta 0201 og 0203 og eignirnar samnýttar tímabundið. Einnig er gerð grein fyrir milliloftum sem nýtt eru sem geymslur. Samþykki nokkurra meðeigenda dags. 9. maí 2012 fylgir erindinu. Stærð: Stækkun milliloft 48,0 ferm. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.