Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í íbúð 0101, 0102 og 0202, einnig að innrétta vinnustofu í þakrými íbúðar 0301 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 26 við Freyjugötu. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.